Hetjan á Bondi: „Finn enn til vegna hinna látnu“

Ahmed Al-Ahmed, ávaxtasali sem afvopnaði annan af tveimur árásarmönnunum sem drápu 15 manns á Bondi-ströndinni í Sydney í Ástralíu fyrir hálfum mánuði, segir að hann hafi ekki viljað heyra fleiri hvelli úr byssu mannsins. Allt innra með honum hafi hrópað á hann að stöðva manninn. Ahmed, sem slasaðist sjálfur við að afvopna manninn, sagðist í viðtali við CBS-sjónvarpsstöðina hafa skipað árásarmanninum að sleppa byssunni þegar hann náði taki á honum. Hann finni enn til með þeim sem létust þó að hann geri sér grein fyrir því að hann hafi bjargað mannslífum.