Maður fannst látinn í Borgarnesi

Maður á fimmtugsaldri fannst látinn utandyra í Borgarnesi á öðrum degi jóla. Lögreglan á Vesturlandi segir ekkert benda til þess að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað. Beðið er niðurstöðu krufningar til að staðfesta dánarorsök. Maðurinn var af erlendu bergi brotinn en bjó hér á landi. Pexels / Mohammad reza Fathian