Sergei Lavrov.EPA / Mohamed Hossam Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands segir að Úkraínumenn hafi í nótt skotið yfir 91 langdrægum drónum að húsi Vladimírs Pútín forseta Rússlands í Novgorod-héraði. Rússneska fréttastofan Interfax greinir frá og vitnar í yfirlýsingu frá honum. Lavrov segir Rússa endurskoða afstöðu sína til friðarsamninga af þeim sökum. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu segir þetta lygi, að því er fréttastofa Reuters greinir frá. Rússar séu með þessu að reyna að grafa undan friðarumleitunum. Rússar séu hins vegar að undirbúa árásir á stjórnkerfisbyggingar í Kyiv. Hvoruga fullyrðinguna hefur verið hægt að staðfesta af hálfu fjölmiðla.