Grænir stilkar í beðum og brum á greinum eftir sumarhita um jólin

Laukar skutu upp grænum stilkum og brum kom á greinar á landinu norðan- og austanverðu yfir óvenju hlý jól. Garðyrkjufræðingur segir íslensku tegundirnar ekki láta blekkjast, þrátt fyrir sumarhita í desember. Um jólin blésu um landið hlýir sunnanvindar og mældist hæsti hiti í desember frá upphafi mælinga, heil 19,8 stig á Seyðisfirði. Víða um landið austan- og norðanvert fór hitinn vel yfir fimmtán stig. Sumar plöntutegundir hafa tekið feil í blíðunni og haldið að nú væri tekið að vora. Það eru einna helst innfluttar tegundir, það er að segja plöntur sem ekki hafa aðlagast íslensku veðurfari í lengri tíma, sem fóru dagavillt í hitanum og gætu einhverjar þeirra skemmst.