Ekki verður gefið upp hve mikið eldsneytisverð lækkar vegna breytinga á opinberum gjöldum fyrr en á nýársnótt. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Samkeppniseftirlitið hefur beðið keppinauta á markaði að miðla upplýsingum um verðbreytingar eldsneytis í samræmi við samkeppnislög. Það nær meðal annars til umfjöllunar í fjölmiðlum. Olíugjald á eldsneyti verður aflagt um áramót, kolefnisgjald hækkar og öllum bíleigendum verður gert að greiða tiltekið gjald fyrir hvern ekinn kílómetra. Þá hefur einnig áhrif á verðið hve mikil íblöndunarefni eru í eldsneyti á dælu. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, tjáði fréttastofu RÚV fyrir jól að olíufélögunum verði veitt aðhald svo þau hækki ekki álagningu á eldsneyti. Hann kvaðst þá búast við að eldsneytisverð lækkaði um 80 til 90 krónur.