Maður var handtekinn grunaður um peningaþvætti, ólöglega sölu áfengis, akstur gegn gjaldi án leyfis og brot á barnaverndarlögum. Lögreglubílar af Tesla gerð með blikkandi ljós.Lögreglan á Vesturlandi Þrír menn gistu fangageymslur lögreglu í morgun vegna gruns um aðild að þjófnaðarmáli ásamt því sem þeir voru staðnir að sölu og dreifingu fíkniefna. Karl og kona voru kærð fyrir að þjófnað úr raftækjaverslun í vesturhluta borgarinnar, að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar. Dælubílar slökkviliðsins voru ekkert kallaðir út í nótt að sögn varðstjóra. Skráningarmerki voru fjarlægð af minnst tveimur ökutækjum sem ekki höfðu verið færð til aðalskoðunar og maður kærður fyrir að aka bíl sviptur réttindum til þess.