Rýming vegna árása í norðurhluta Úkraínu

EPA / SERGEY KOZLOV Stjórnvöld í Úkraínu hafa fyrirskipað að 14 þorp verði rýmd vegna árása í Chernigiv-héraði í norðurhluta landsins. Héraðið liggur að Belarús, sem eru bandamenn Rússa. Úkraínumenn segja Rússa hafa gert árásir á þorpið. Um 300 manns búa á rýmingarsvæðinu.