Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan 20 mínútum yfir 1 eftir hádegi í dag til að sækja konu sem slasaðist í vélsleðaslysi á Langjökli. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi gæslunnar, segir þyrluna hafa lagt af stað til Reykjavíkur rétt fyrir klukkan 2. Hann segir þyrlusveitina hafa verið að koma af æfingu og því getað brugðist hratt við. Hún var send að Skálpanesskála til að sækja konuna. Meiðsl konunnar liggja ekki fyrir en þau voru þess eðlis að ástæða þótti til að kalla út þyrlu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir björgunarsveitir á Flúðum, Laugarvatni og úr Biskupstungum hafa verið kallaðar út. Vegna skamms viðbragðstíma þyrlunnar var útkallið afturkallað áður en björgunarsveitir náðu á staðinn. Einn björgunarsveitarmaður var í grennd við slysstað og var kominn á staðinn um svipað leyti og þyrlan.