Flugeldasalan er hafin í Hollandi fyrir áramótin, líklega í síðasta sinn. Fulltrúadeild og öldungadeild þingsins samþykktu bannið fyrr á þessu ári. Síðan féll ríkisstjórnin og kosningar fóru fram í október. Ekki er búið að mynda stjórn eftir þær enn þá en ólíklegt er talið að sú stjórn hrófli við banninu. Rökin fyrir því að banna flugelda eru aðallega slysahætta og slæm áhrif á heilsu manna og dýra vegna mengunar. Kannanir sýna að um 60% Hollendinga eru fylgjandi banninu en fulltrúar Frelsisflokksins og Sósíalistaflokksins eru andvígir því. Viðskiptavinir flugeldasölunnar voru flestir heldur neikvæðir fyrir breytingunni en ætluðu samt að taka þetta síðustu flugeldaáramót með stæl.