Yfir 30 milljónum evra rænt í bankaráni

Bankastarfsmaður heldur á evrum. Mynd úr safni.EPA / MATTHIAS BALK Ræningjar stálu um 30 milljónum evra í reiðufé og verðmætum úr banka í Gelsenkirchen í vesturhluta Þýskalands um hátíðarnar. Þýska blaðið Bild greinir frá þessu í dag. Þjófarnir boruðu gat á vegg á skrifstofu bankans og enduðu í miðri hvelfingu með öryggishólfum. Þar stálu þeir því sem þeir gátu tekið úr yfir 3.000 öryggishólfum sem innihéldu flest peninga, gull og skartgripi. Bankanum var lokað í gær þegar þetta uppgötvaðist. Þetta rán er talið eitt það stærsta í Þýskalandi á síðari tímum. Viðskiptavinir söfnuðust saman við bankann í dag og reyndu einhverjir þeirra að brjótast inn. Að sögn lögreglu ganga þjófarnir enn þá lausir.