Evrópuleiðtogar hitta Zelensky eftir viku

Volodymyr Zelensky í Flórída um helgina.EPA / PRESIDENTIAL PRESS SERVICE / HANDOUT Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hittir evrópska leiðtoga í Frakklandi 6. janúar. Zelensky tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í dag. Þremur dögum áður, 3. janúar, hittast öryggisráðgjafar frá bandamönnum. Zelensky sagði á blaðamannafundi að öryggisráðgjafarnir myndu fara yfir öll skjöl og alla grunnvinnu áður en leiðtogar ræða málin á fundinum í Frakklandi. Ráðgjafarnir muni svo hittast aftur daginn eftir til að fara yfir niðurstöðu leiðtogafundarins.