Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma. Þau sem hafa keypt pakkann eru hvött til að skipta honum fyrir aðra vöru á næsta sölustað. Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun þar til sölustaðir loka og á opnunartíma fyrir þrettándann. „Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.“ Slysavarnafélagið Landsbörg innkallar Rakettupakka 2.Aðsend