Stundar skíðagöngu á hlaupabretti í snjóleysinu

Dagur Benediktsson, skíðagöngukappi, stefnir ótrauður á Vetrarólympíuleikana á næsta ári og allt æfingaplan hans miðast að því að hann verði þar með. Sökum snjóleysis á Íslandi þessa stundina neyðist hann til að æfa íþrótt sína innandyra á hlaupabretti þar sem hann eyðir allt að þremur tímum á dag, stundum starandi út í loftið en stundum leyfir hann sér að horfa á Netflix. Hann segir Íslendinga ekki þekkja skíðagönguna nægilega vel: „En mér finnst þetta aðeins vera að komast meira inn í menninguna hér og það eru fleiri og fleiri að fatta skíðin.“ Dagur hefur skíðað vel á tímabilinu og keppti til að mynda í fyrsta skipti í heimsbikarnum í byrjun mánaðar . Hann segir að hann sé að toppa sig núna og sé því klár í Vetrarólympíuleikana í febrúar. Nánar er rætt við Dag í spilaranum hér fyrir ofan.