Heræfingum Kína við Taívan lokið

Kínverjar hafa lokið heræfingum sínum við Taívan og segja að þær hafi gengið vel. Á æfingunum var raunverulegum skotvopnum beitt og var líkt eftir lokum hafna og árásum á skotmörk á sjó. Tugir sprengja og flugvéla voru notaðar við æfingarnar. Li Xi talsmaður hersins boðaði frekari æfingar til að kæfa tilraunir til sjálfstæðis í Taívan og afskipti utanaðkomandi aðila. EPA / RITCHIE B. TONGO