Þrír handteknir eftir að hnífi var beitt í alvarlegri líkamsárás

Þrír voru handteknir eftir alvarlega líkamsárás á Akureyri í nótt. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að hnífi hafi verið beitt. Tveir hinna handteknu voru með alvarlega áverka og voru þeir fluttir til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri. Lögregla segir að einn þeirra hafi verið með tvo stunguáverka og annar með umtalsverða áverka í andliti. Þeir voru færðir í fangageymslur lögreglu á Akureyri að lokinni læknisskoðun. Í tilkynningu segir að rannsókn málsins sé á frumstigi og ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald.