Nokkrir eru látnir eða slasaðir eftir að sprenging varð á veitingahúsi í Sviss í nótt. Ekki er vitað hve margir létust í sprengingunni en samkvæmt BBC voru um eitt hundrað manns í byggingunni þegar hún átti sér stað klukkan hálf tvö í nótt. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni en talið er líklegt að hún hafi tengst flugeldum. Það hefur þó ekki verið staðfest af lögreglu. Áramótafögnuður hafði farið fram á veitingahúsinu sem staðsett er í Cans-Montana skíðasvæðinu í svissnesku ölpunum, um tveimur tímum frá höfuðborginni Bern. Upplýsingafundur svissnesku lögreglunnar verður haldinn í dag klukkan ellefu að svissneskum tíma. Fréttin verður uppfærð.