Á næstu dögum verða norlægar áttir ríkjandi. Af til verða þær allhvassar á austanverðu landinu og með dálitlum éljum. Yfirleitt hægari vindur og bjart í öðrum landshlutum. Hitastig lækkar á næstu dögum vegna kaldra vinda. Í dag verður vindur á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu og hvassast fyrir austan. Bjart að mestu en söku él verða einnig á austanverðu landinu. Á morgun verður norðvestanátt, vindur 10 til 18 metrar á sekúndu og áfram stöku él fyrir austan. Dregur úr vindi síðdegis. Frost verður á bilinu tvö til 12 stig, kaldast inn til landsins. Veður kólnar á næstu dögum.RÚV / Ragnar Visage