Bíll valt á Hellisheiði um klukkan ellefu í dag. Varað hefur verið við hálku víðs vegar um landið, þar á meðal á Hellisheiði. Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að ekki hafi orðið alvarleg meiðsli á fólki vegna bílveltunnar. Hann telur rétt að vara fólk við hálku á vegum og að ökumenn ættu að fara varlega.