Einn fluttur slasaður með þyrlu eftir bílveltu í Hrútafirði

Þyrla LandhelgisgæslunarRÚV / Kristófer Óli Birkisson Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu í Hrútafirði á hringveginum gegnt Borðeyri. Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfestir þetta. Útkallið barst um tuttugu mínútur í fimm. Ekki er vitað hversu margir voru í bílnum, þyrlan var er enn á vettvangi þegar fréttastofa ræddi við Ásgeir.