Slökktu sinueld í varnargörðunum við Neskaupsstað

Slökkvilið Fjarðabyggðar slekkur sinueld.Slökkviðið Fjarðabyggð Slökkvilið Fjarðabyggðar réð að niðurlögum sinuelds sem logaði í varnargörðum ofan við Neskaupstað á nýársnótt. Þetta kemur fram á Facebook-síðu slökkviliðsins. Alls þurfti að ræsa út þrjár stöðvar til þess að sinna útkallinu það voru því tveir vel mannaðir bílar sem unnu að því að slökkva eldinn í varnargörðunum. Aðrir sinueldar urðu nær íbúabyggð og var því meiri hætta sem að stafaði af þeim. Slökkvistarfið gekk vel og í tilkynningunni segir að íbúar hafi komið með sín eigin áhöld og aðstoðað við að ráða að niðurlögum eldsins. Rólegra var í sjúkraflutningum en tveir bílar sinntu útkalli vegna líkamsárásar auk annarra veikinda. Sinueldur í grennd við íbúabyggð.Slökkvilið Fjarðabyggðar