Býst jafnvel við frekari lækkun á eldsneytisverði

Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir bensínverð í samræmi við væntingar og býst við frekari lækkunum. Verð á bensíni lækkaði víðast hvar um tæpar hundrað krónur á miðnætti, þegar eldsneytisgjald var aflagt og kílómetragjald tók við í staðinn. „Af því að félögin hafa ekki skilað þeirri lækkun sem hefur verið á heimsmarkaði síðustu vikurnar. Þannig að það var smá fjör í nótt af því að við sáum það að til að mynda Orkan lækkaði dísilolíuna til að byrja með um 80 krónur en nokkrum mínútum síðar var búin að bæta við ríflega 7 krónum í viðbót í lækkun. Það kom til af því að Atlantsolían var þarna á milli að lækka um 87. Við skulum bara vona að menn verði svona á tánum áfram,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.