Íþróttamenn ársins í gegnum tíðina

Samtök íþróttafréttamanna (SÍ) voru stofnuð 14. febrúar árið 1956 af þeim Atla Steinarssyni, Frímanni Helgasyni, Halli Símonarsyni og Sigurði Sigurðssyni. Tvennt hefur verið meðal aðal mála SÍ frá upphafi, að berjast fyrir bættri vinnuaðstöðu íþróttafréttamanna og að útnefna íþróttamann ársins. Í þessi 69 skipti hafa 47 íþróttamenn hreppt nafnbótina Íþróttamaður ársins. Það kemur í ljós annað kvöld í Hörpu í beinni sjónvarpsútsendingu RÚV hvort 48. íþróttamaðurinn bætist við eða þeir verði áfram 47, því þrír íþróttamenn sem þegar hafa hreppt hnossið eru meðal tíu efstu í kjörinu í ár. Hér förum við stuttlega yfir fyrri sigurvegara í myndum.