Banaslys á Hvolsvelli

Kona á fertugsaldri lést að kvöldi 30. desember eftir að hún varð fyrir bifreið á bílaplani á vinnusvæði. Þetta staðfestir Lögreglan á Suðurlandi í tilkynningu á Facebook-síðu sinni. Konan var flutt á Landspítalann eftir slysið og var úrskurðuð látin þar. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar málið sem talið er vera slys. Í tilkynningu segir að ekki sé frekari upplýsinga að vænta frá lögreglu um atvikið.