Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að mótmælendum í Íran verði komið til bjargar ef stjórnvöld í landinu drepa þá. Bandaríkin séu reiðubúin að grípa inn í. „Ef Íran skýtur og drepur friðsama mótmælendur með ofbeldi, eins og þeim er tamt, munu Bandaríkin koma þeim til bjargar,“ segir forsetinn á Truth Social. Verslanaeigendur í höfuðborginni Teheran lögðu niður störf í gær til að mótmæla bágbornu efnahagsástandi í Íran. Verkfallið varð að ófriðarbáli og lenti mótmælendum saman við lögreglu með þeim afleiðingum að sex voru drepnir. Orð Trumps vöktu úlfúð í Íran. Ali Larijani, formaður þjóðaröryggisráðs Írans, segir að afskipti Bandaríkjamanna í innanríkismálum Írans ógni friði um gervöll Mið-Austurlönd. Forsetinn ætti að gæta orða sinna, segir Larijani. Verðbólga í Íran er um 42% og virði íranska ríalsins gagnvart bandaríkjadal hefur hríðfallið síðustu daga. Þetta hefur í för með sér mikla kjararýrnun íbúa landsins. Efnahagur Írans hefur um árabil verið mjög laskaður, ekki síst vegna viðskiptaþvingana vegna kjarnorkuáætlunar landsins.