Kjörstjórn Viðreisnar í Hafnarfirði hefur staðfest fjögur framboð fyrir prófkjör flokksins sem haldið verður 17. janúar. Framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Prófkjörið er bindandi fyrir tvö efstu sæti á framboðslista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Tveir frambjóðendur bjóða sig fram til 1. sætis á listanum. Það eru Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi og Karólína Helga Símonardóttir, varabæjarfulltrúi og 1. varaþingmaður. Sömuleiðis eru tvö í framboði til 2. sætis, þau Árni Stefán Guðjónsson, áfangastjóri í Flensborgarskólanum, og Hjördís Lára Hlíðberg, verkefnastjóri hjá JBT Marel. Búið er að boða til kynningarfundar með frambjóðendum fimmtudaginn 15. janúar. Nánari upplýsingar um tímasetningu og staðsetningu verða auglýstar síðar. Prófkjör Viðreisnar verður haldið 17. janúar. Allir skráðir félagar í flokknum, 16 ára og eldri, sem eiga lögheimili í Hafnarfirði geta greitt atkvæði í prófkjörinu sem verður rafrænt.