Þremur erlendum ríkisborgurum sem taldir eru tengjast skipulagðri brotastarfsemi hefur verið vísað frá Íslandi. Fólkið, tveir karlar og ein kona, kom saman til landsins 15. desember og var handtekið þremur dögum síðar grunað um þjófnað. Þetta segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarafulltrúi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Við teljum að þau hafi komið hingað gagngert til þess að stunda brotastarfsemi og svo voru þau handtekin í Reykjavík þremur dögum eftir komuna. Þá vorum við þegar með þessi brot til rannsóknar,“ segir Gunnar. Þremenningarnir voru í gæsluvarðhaldi frá handtöku þar til þeim var vísað úr landi fyrir áramót. Fólkið hafi annars vegar stolið reiðufé og hins vegar komist yfir PIN-númer einstaklings með því að horfa yfir öxlina á honum í verslun áður en það rændi af honum greiðslukortinu og tæmdi það. „Þetta voru töluverðar upphæðir í báðum tilvikum, nokkur hundruð þúsund krónur í báðum tilvikum.“ Gunnar segir bæði brotin tengjast matvöruverslunum í Reykjavík. Vasaþjófnaður hafi verið áberandi á árinu. „Þetta eru brot sem við höfum verið að sjá hérna á höfuðborgarsvæðinu í nokkur ár. Það hafa verið vasaþjófar á ferð. Þessi brot tengjast matvöruverslunum þar sem má segja að þjófarnir hafi eiginlega setið um fyrir fólki. Við erum farin að sjá þetta á síðustu árum.“