Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður náði tali af landsmönnum og spurði hvort þeir hefðu strengt áramótaheit. Flestir sögðust ætla að stunda meiri hreyfingu og útivist á árinu, til dæmis með því að fara á skíði, vera í fimleikum og frjálsum og að halda áfram í fótbolta. Á samfélagsmiðlum er að finna misgóð ráð um markmiðasetningu. Telma Eiðsdóttir, ráðgjafi hjá fyrirtækinu Mögnum, segir mikilvægast að spyrja sig hvers vegna maður vilji gera hlutina. Hún tekur sem dæmi hið týpíska áramótaheit að fara út að hreyfa sig og að borða hollt. „Það eitt og sér er kannski ekki nógu mikill tilgangur fyrir þig til að ná markmiðinu. Þannig það er mjög mikilvægt að þú leggist aðeins yfir það og sjáir svona hver tilgangurinn er og af hverju þig langar að ná því,“ segir Telma.