Norðmenn komust nærri því markmiði stjórnvalda á nýliðnu ári að selja eingöngu mengunarfrí ökutæki. Rafbílar voru 95,9 prósent af nýskráningum á árinu 2025. Norsk stjórnvöld höfðu gert það að óskuldbundnu markmiði ársins að eingöngu mengunarlaus ökutæki yrðu seld á árinu. Breytingar á virðisaukaskatti sem tóku gildi um áramót eru taldar eiga stóran þátt í því að margir keyptu sér nýjan rafbíl fyrir árslok, segir Geir Inge Stokke, forstjóri norsku Vegagerðarinnar í yfirlýsingu sem AFP vísar til. Norska ríkisstjórnin ákvað að lækka undanþágu frá virðisaukaskatti úr 500 þúsund norskum krónum í 300 þúsund frá og með fyrsta janúar. Fella átti undanþáguna niður á næsta ári en búist er við að hún verði í gildi fram til 2028. Metfjöldi fólksbíla var skráður í Noregi 2025, alls 179,549 bílar. Fyrra met var frá árinu 2021. Rafbílar voru 97,6 prósent seldra bíla í Noregi í desember.