Alvarlegt umferðarslys á Biskupstungnabraut

Alvarlegt umferðarslys varð á Biskupstungnabraut, skammt sunnan við Þrastarlund, upp úr klukkan hálf tvö í dag. Lögreglan á Suðurlandi er að störfum á vettvangi og greinir frá þessu í færslu á Facebook. Þar segir að tveir bílar hafi rekist saman. Biskupstungnabraut er lokuð milli Suðurlandsvegar og Grafningsvegar syðri meðan viðbragðsaðilar eru að störfum á vettvangi.