Sólin skein skært á stuðningsmenn Leeds á Elland Road í dag.EPA / ALEX DODD Manchester United og Leeds United gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta rétt í þessu. Bandaríski kappinn Brendan Aaronson kom Leeds yfir eftir að hann stakk varnarlínu United af á 62. mínútu. Matheus Cunha jafnaði metin þremur mínútum síðar. Liðin eiga sér mikla sögu og þessi slagur er gjarnan kallaður bardaginn um Pennínafjöll (e. Battle of the Pennines). Það er fjallgarður sem skilur að norðvestur-England og Yorkshire-sýslu. United er sem fyrr í 5. sæti með 31 stig og Leeds er í 16. sæti með 22 stig.