Samtök hernaðarandstæðinga fordæma árásirnar á Venesúela

Samtök hernaðarandstæðinga sendu frá sér yfirlýsingu um nýyfirstaðnar árásir Bandaríkjamanna á Venesúela og brottnám Nicolás Maduro forseta í dag. Í yfirlýsingunni fordæmdu samtökin háttsemi Bandaríkjamanna og settu þau í samhengi við fyrri afskipti þeirra af stjórnmálum Rómönsku Ameríku. Samtökin gagnrýndu jafnframt viðbrögð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um árásirnar. Þorgerður hefur forðast að segja berum orðum að árásin og brottnám forsetans hafi brotið gegn alþjóðalögum en hefur ýjað að því að svo kunni að vera. Yfirlýsingu samtakanna má lesa hér í heild sinni: Miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga fordæmir freklega árás Bandaríkjanna á Venesúela og ránið á forsetanum Nicolás Maduro laugardaginn 3. janúar. Um áratuga skeið hafa Bandaríkin hlutast til um málefni ríkja Rómönsku Ameríku, skipulagt þar valdarán, stutt hryðjuverkahópa eða haft áhrif á kosningar. Sú saga er löng og einkennist af skýlausum brotum á alþjóðalögum og fullveldisrétti landa. Um árabil hefur Venesúela mátt sæta grimmilegu hafnbanni og efnahagsþvingunum sem valdið hafa mikilli neyð meðal almennings. Við það hafa bæst ítrekaðar ólöglegar árásir á báta og rán á olíuskipum. Mannskæðar árásir á Venesúela og ránið á forsetanum nú eru hins vegar óvenjulegar að því leyti að Bandaríkjastjórn gerir enga tilraun til að ljá þeim lögmæti. Þess í stað eru þær staðfesting á nýsamþykktri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna þar sem þau áskilja sér rétt til að fara sínu fram á skilgreindu áhrifasvæði sínu og beita hervaldi hvar sem þeim hentar. Samtök hernaðarandstæðinga fordæma þessa árás og það fullkomna virðingarleysi Bandaríkjanna við alþjóðalög sem hún sýnir. Það er krafa samtakanna að íslensk stjórnvöld og utanríkisráðherra fordæmi þessa framgöngu með afdráttarlausum og skýrum hætti í stað þess að réttlæta löglausa innrás og mannrán sem „velheppnaða aðgerð“. Meðvirkni Íslands og annarra Nató-ríkja með framferði Bandaríkjanna líkist einna helst ofbeldissambandi. Afleiðingin af slíkjum undirlægjuhætti verður einungis áframhaldandi ofbeldi og enn háskalegri veröld.