Jörð verður víða hvít í dag, einkum þó norðaustanlands því það snjóar nokkuð víðast hvar á landinu. Minnst verður þó um snjókomu suðvestantil. Veðurspáin er svohljóðandi. Norðan og norðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu og snjókoma með köflum eða él, einkum norðaustanlands, en úrkomulítið suðvestantil. Léttir víða til síðdegis um vestanvert landið. Breytileg átt á morgun, þrír til tíu metrar á sekúndu, en norðvestan þrettán til átján austantil. Víða bjart, en stöku él norðan jökla og bætir í ofankomu austantil síðdegis. Frost tvö til átta stig, en hiti um og yfir frostmarki við Suður- og Vesturströndina að deginum. Herðir á frosti á morgun.