Nicolas Maduro og eiginkona hans, Cilia Flores, verða færð fyrir dómara í New York-borg í dag og þeim birtar ákærur. BBC segir að ákæruskjalið sé 25 blaðsíður og að þar komi fram ásakanir um að þau hafi hagnast á smygli glæpasamtaka á kókaíni til Bandaríkjanna. Maduro hafnar ásökunum og segir þær fyrirslátt til þess að þvinga hann frá völdum. Hjónin taka afstöðu til ákæranna fyrir dómi og eru talin líkleg til að fara fram á lausn gegn tryggingu. Ólíklegt þykir að dómurinn fallist á það. Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur ítrekað fullyrðingar sínar um að Bandaríkin fari með stjórn Venesúela og krafist þess sem hann kallar fullan aðgang að olíuiðnaði landsins. Þá hefur hann varað samherja Maduros við og sagt að verði ekki farið að hans vilja þá fari Bandaríkin í frekari hernaðaraðgerðir. Delcy Rodríguez, starfandi forseti Venesúela, verður formlega sett í embætti í dag. Hún birti í gær færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún ítrekaði fyrri orð sín um fullveldi Venesúela og vilja landsmanna til að vera lausir við ytri ógnir. Rodríguez sagðist þó reiðubúin til að eiga samstarf við bandarísk stjórnvöld um sameiginlega þróun sem byggði á alþjóðalögum. Tónn hennar í færslunni í gær þykir mildari en fyrstu viðbrögð hennar í ræðu eftir árásir Bandaríkjastjórnar.