Hann segist nýta dagana fram að EM í að fókusa á færri hluti í leik liðsins, frekar en að reyna að vinna í öllu í einu. „Fókusa á aðeins færri hluti og gera þá vel, gera þá rétt. Í stóra samhenginu þurfum við náttúrulega að drilla alla hluti; sókn og vörn, yfirtölu, 7 á 6, við þurfum að reyna að vera með sem mest í okkar vopnabúri en mikilvægast er að gera hlutina vel,“ segir Snorri. Hann segist skilja væntingar fólks til liðsins en segir mikilvægt að vera raunsær. „Fyrir okkur sem lið er fínt að fókusa á fáa hluti í einu og fara ekki framúr okkur og mér finnst við vera í krefjandi riðli og við þurfum að gera það vel. Það er algjört lykilatriði fyrir okkur upp á framhaldið að helst vinna hann,“ segir Snorri Steinn.