Stjórn afþreyingar- og fjölmiðlarisans Warner Bros Discovery hefur í annað sinn hafnað yfirtökuboði frá Paramount Skydance. Stjórnin hafnaði fyrra tilboði Paramount í desember og í dag hafnaði hún uppfærðu tilboði. Stjórn Warner Bros samþykkti einróma að halda áfram samrunaviðræðum við Netflix-streymisveituna. Hún sagði að það væri ekki í samræmi við bestu hagsmuni hluthafa að ganga að tilboði Paramount. Merki risafyrirtækjanna sem hyggja á kaup og sölur.EPA / HANNIBAL HANSCHKE