Utanríkisráðherrar Grænlands og Bandaríkjanna funda

Grænlenski miðillinn Sermitsiaq greinir frá því að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Vivian Motzfeld, utanríkisráðherra grænlensku landsstjórnarinnar, funda í næstu viku. Marco Rubio nefndi þetta sömuleiðis á blaðamannafundi í Washington rétt í þessu og sagðist ætla að hitta fyrir danska erindreka. Vivian Motzfeld, utanríkisráðherra grænlensku landsstjórnarinnar.KNR grænlenska ríkissjónvarpið