City og Villa misstigu sig bæði

Manchester City gerði 1-1 jafntefli við Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Á sama tíma gerði Aston Villa markalaust jafntefli við Crystal Palace. Liðin eru jöfn í 2.-3. sæti deildarinnar og eru nú fimm stigum á eftir Arsenal sem á leik til góða og getur náð 8 stiga forystu með sigri gegn Liverpool á morgun. Manchester United lék fyrsta leikinn eftir að Ruben Amorim var rekinn og gerði 2-2 jafntefli við Burnley. Fjögur jafntefli urðu í átta leikjum kvöldsins. Önnur úrslit má finna hér. Svekkelsi hjá Manchester City eftir jafntefli gegn Brighton.AP / Dave Thompson