Rafmagnslaust er víða um Úkraínu suðaustanverða vegna loftárása Rússa. Orkumálaráðherra landsins greinir frá þessu og segir ástandið verst í fylkjunum Dnípró og Zaporízja. Manneskja á göngu í Kyiv undir lok desember.EPA / SERGEY DOLZHENKO Þar búa samtals um 2,4 milljónir manna. Veðurspár gera ráð fyrir allt að 20 stiga frosti þar um helgina. Rússar hafa löngum beint árásum sínum að orkuinnviðum Úkraínu og þær hafa færst í aukana undanfarna mánuði.