Hringvegurinn lokaður á Suðurlandi vegna óveðurs

Vegurinn á milli Skaftafells og Fagurhólsmýrar er lokaður vegna óveðurs. Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu vegna norðaustan 15-23 metra á sekúndu og snjókomu. Búast má við éljagangi og skafrenningi með takmörkuðu eða lélegu skyggni í þessum landshluta og versnandi akstursskilyrðum.