Franskir bændur óku dráttarvélum sínum inn í miðborg Parísar í morgun til þess að mótmæla nýjum fríverslunarsamningi Evrópusambandsins við MERCOSUR-efnahagsbandalagið í Suður-Ameríku. Tugum dráttarvéla hefur verið lagt nærri Eiffel turninum og Sigurboganum. Bændur telja að samningurinn eigi eftir að skaða samkeppnisstöðu þeirra. Verði samningurinn samþykktur í aðildarríkjum Evrópusambandsins á morgun verður til eitt stærsta fríverslunarsvæði heims með aukningu í útflutningi frá Evrópu á bílum, tækjabúnaði, víni og öðru áfengi til Suður-Ameríku. Bændur óttast aftur á móti að innflæði af ódýrum landbúnaðarvörum eigi eftir að hafa skaðleg áhrif á afkomu þeirra. AFP hefur eftir Simon Harris, aðstoðarforsætisráðherra Írlands, að þarlend stjórnvöld hyggist greiða atkvæði gegn samningi.