Hákon Daði heim til ÍBV

Hákon Daði Styrmisson, handboltamaður, samdi í dag við lið ÍBV í Olísdeildinni. Talsvert er síðan að hann ákvað að yfirgefa Eintracht Hagen í þýsku B-deildinni og hafði hann verið í viðræðum við Val. Ekkert varð úr því að hann semdi við Hlíðarendafélagið og gekk hann til liðs við uppeldisfélag sitt í Vestmannaeyjum. Hákon Daði er 28 ára gamall og lék með ÍBV og Haukum áður en hann gekk til liðs við Gummersbach í Þýskalandi 2021. Þaðan fór hann til Hagen 2023 og er sem stendur næstmarkahæstur í B-deildinni þýsku. Hann á 16 A-landsleiki að baki og var með Íslandi á HM 2023 í Svíþjóð. Hákon Daði skælbrosir eftir samningsundirritun hjá ÍBV.ÍBV