Inga Sæland ætlar að taka við mennta- og barnamálaráðuneytinu af Guðmundi Inga Kristinssyni sem hefur ákveðið að láta af embætti. Ragnar Þór Ingólfsson, þingflokksformaður Flokks fólksins verður félags- og húsnæðismálaráðherra. Þetta kemur fram í færslu Ingu á Facebook. Guðmundur Ingi Kristinsson tilkynnti um ákvörðun sína fyrir stundu. Hann gekkst undir hjartaaðgerð í desember og segist vilja einbeita sér að því að ná bata. Fréttin verður uppfærð.