Að mörgu er að huga þegar æfingaleikir fyrir stórmót eru annars vegar. Einhverjir vilja sjá helstu hestana spila sig saman, aðrir vilja nýta tímann í að prófa eitthvað nýtt. „Ég vil bara sjá Snorra búa til ákveðinn kjarna,“ segir Logi Geirsson. Kári Kristján Kristjánsson vill hins vegar skoða aðra hluti: „Ég er alltaf voða mikið í því að vilja prófa,“ segir hann. Hann viðurkennir þó líka að hann skilji þörfina að æfa „fyrstu fiðlurnar,“ eins og hann orðar það. Ólafur Stefánsson vill svo sjá vörnina smella og svo það sem Snorri Steinn var þekktur fyrir hjá Val. „Ég vil fá að sjá hraðaupphlaup, að við getum spilað með lið sem er að keyra fram og tilbaka,“ segir Ólafur.