Tekinn með þrjá lítra af kókaíni

Sarunas Juozaponis var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Hann reyndi að smygla þremur lítrum af kókaíni í vökvaformi með flugi frá Lettlandi. Juozaponis er litháískur ríkisborgari. Juozaponis játaði sök. Hann tók að sér að flytja efnin til Íslands gegn greiðslu en átti þau ekki. Tekið var tillit til þess að hann játaði greiðlega sök. Dómari sagði á hinn bóginn ekki hægt að líta framhjá því að hann hefði flutt efnin inn til sölu hér á landi. Héraðsdómur Reykjaness.RÚV / Ragnar Visage