Boðað hefur verið til fundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á mánudag þar sem ræða á stöðu mála í Úkraínu, að beiðni þarlendra stjórnvalda. Endurskoðuð dagskrá var gefin út gærkvöld eftir að Rússlandsher gerði umfangsmiklar loftárásir á Kyiv sem ollu skorti á heitu vatni um hávetur. Borgarstjórinn Vitali Klitschko segir um helming íbúðarhúsnæðis borgarinnar án hita. Auk þess var ofurhraðfleygri og illgrandanlegri Oreshnik-eldflaug skotið að borginni Lviv. Það segir úkraínski sendiherrann Andriy Melnyk valda fordæmalausri ógn við öryggi allrar Evrópu. Hann segir í bréfi til ráðsins stríðsglæpi Rússa og glæpi gegn mannkyni hafa náð nýjum hæðum með árásum á almenna borgara og borgaralega innviði Úkraínu. Fulltrúar Breta, Frakka, Letta, Dana, Grikkja og Líberíu studdu tillögu Úkraínumanna,