Ófært er um Klettsháls á Vestfjörðum og þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er bíll fastur á miðjum vegi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát. Á Vestfjörðum er búist við éljagangi fram undir kvöld. Það er hálka eða hálkublettir og sums staðar snjóþekja á flestum leiðum um allt land, en síst suðvestanlands. Þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði.RÚV / Halla Ólafsdóttir