Vöxtur á Vogaflugvelli — einkum í fraktflutningum

Lítið met var slegið á liðnu ári í fjölda þeirra farþega sem fara um alþjóðaflugvöllinn í Vogum að sögn forstjórans Regins I. Jakobsen. Hann segir í yfirlýsingu að 461.064 hafi farið um völlinn sem sé fjölgun um 3,8 af hundraði frá árinu 2024. Árið 2025 hafi byrjað rólega en þegar á leið fjölgaði farþegum nægilega til að slá met. „Þetta er ekki stórkostleg fjölgun, en það er alltaf gaman að sjá tölurnar fara í rétta átt,“ segir Jakobsen. Hins vegar reyndist metið í fraktflutningum stærra, en alls komu 8.400 tonn af vörum gegnum Vogaflugvöll. Það er 16 prósenta aukning frá fyrra ári. Jakobsen segir það helst mega þakka miklum útflutningi laxeldisfyrirtækisins Bakkafrosts. „Frakthluti flugvallarstarfseminnar tók ekki að glæðast fyrir alvöru fyrr en árið 2024 og óx verulega í fyrra eins og tölurnar sýna,“ segir Jakobsen sem segir útlit fyrir áframhaldandi vöxt á komandi árum.