Írskir bændur fjölmenntu á mótmæli í Athlone í dag gegn stærsta fríverslunarsamningi sem ESB hefur gert. Hann er við Mercosur-ríkin í Suður-Ameríku. Samningurinn var samþykktur á vettvangi ESB í gær. Viðræður um samninginn hafa staðið í 25 ár. Töluverð andstaða hefur verið við hann, sérstaklega meðal hagsmunaaðila í landbúnaði. Bændasamtök Írlands telja samninginn ekki tryggja nægilega vel að kjötið sem flutt verður inn frá Mercosur-ríkjum uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til kjötframleiðslu innan aðildarríkja ESB. Mercosur-ríkin eru Brasilía, Argentína, Úrúgvæ og Paragvæ.