Valur valtaði yfir Fram

Fjórir leikir eru á dagskrá Olísdeildar kvenna í handbolta í dag. Valskonur heimsóttu Fram þar sem gestirnir unnu vægast sagt sannfærandi sigur, 19-30. Tvö stig skildu liðin að í deildinni fyrir leikinn, Valur á toppnum með 38 og Fram þar á eftir með 36. Töluverð gjá var á milli liðanna í dag. Valur leiddi með níu mörkum í hálfleik, 10-19. Áfram héldu Valskonur sem unnu ellefu marka sigur 19-30. Hafdís Renötudóttir varði 13 skot í marki Valsara í dag.Mummi Lú Þá mættust Stjarnan og Selfoss þar sem Garðbæingar unnu öruggan sigur 34-28. ÍBV lagði Hauka, 23-20 og KA/Þór hafði betur gegn ÍR 23-21.