Þúsundir mótmæla ICE í Minneapolis

Þúsundir hafa safnast saman í bandarísku borginni Minneapolis til að mótmæla veru innflytjendastofnunarinnar ICE þar og drápinu á Renee Good á miðvikudag. Frá mótmælum í Minneapolis 10. janúar.EPA / OLGA FEDOROVA Trump-stjórnin og talsmenn stofnunarinnar staðhæfa að hann hafi brugðist við í sjálfsvörn. Samkvæmt fréttum bandarískra miðla gengu þúsundir frá Powderhorn-garðinum nærri miðborginni að götunni þar sem Good lét lífið. Smærri hópur kom saman við höfuðstöðvar stofnunarinnar. Einhverjir köstuðu snjóboltum í bygginguna og starfsmenn sem svöruðu með því að skjóta piparúða að mótmælendum. Mótmælin hafa hingað til verið friðsamleg. Andófssamkomur hafa verið boðaðar í fleiri bandarískum borgum.